Hús Fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson fasteignasali kynna í einkasölu. Sumarhús úr timbri í landi Snorrastaða, örstutt frá Laugarvatni. Byggður 1985 og stendur á steyptum súlum. Tvö svefnherbergi. Sólpallur með heitum potti. Eignarlóð 2950 fm. Kjarri og skógi vaxin og með gullfallegu útsýni.
Stutt í margar af fegurstu perlum sunnlenskrar náttúru.Húsið er töluvert endurnýjað að innan, m.a. gólfefni og eldhúsinnrétting. Gott ástand á baðherbergi þar sem er tengi fyrir þvottavél. Nýlega málað og hvíttað að innan. Pípulagnir endurnýjaðar.
Undir húsinu er einangruð kompa/geymsla og þar eru inntök og miðstöðvargrind. Pottalagnir og stýring nýlegar.
Nánari lýsing, Forstofa og geymsla þar inn af. Hol, stofa og eldhús í opnu rými. Fín eldhúsinnrétting. Hurð út á sólpall. Tvö svefnherbergi með plássi fyrir tvíbreið rúm.
Baðherbergi með innréttingu og sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Bústaðurinn hefur verið í Airbnb útleigu og upplýsingar um bókanir sem kaupandi tekur við eru hjá fasteignasala.
Stærstur hluti innbús fylgir (ekki sófi, sjónvarp og leikjatölva)
Greitt er árgjald í Giljareiti, félag sumarhúsaeiganda á svæðinu.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið skoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.