Birkibyggð 6, 846 Flúðir
Tilboð
Sumarhús
4 herb.
139 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
79.300.000
Fasteignamat
76.950.000

Hafsteinn Þorvaldsson LGF s. 891-8891 fasteignasali ásamt HÚS Fasteignasölu kynna í sölu: Stílhreint, bjart og rúmgott 139,9 fm fjögurra herbergja heilsárshús, byggt árið 2017. Húsið stendur á virkilega fallegri 4.922 fm eignalóð og stendur hátt í landinu svo útsýni yfir sveitina er virkilega fallegt.  Hringihlið er inn í sumarhúsabyggðina. Húsið er timburhús, klætt með dökku áli og soðinn dúkur er á þaki sem er einhalla.  Hönnun hússins og umhverfi mynda vel heppnaða heild og fellur húsið vel að náttúrunni og nánasta umhverfi.  Húsið er teiknað af Kristni Ragnarssyni arkitekt.  Steypt stétt er allan hringinn í kringum húsið og að framanverðu er stórt bílastæði og að aftanverðu er stór steypt verönd þar sem m.a. er heitur pottur og skjólgirðing.  Talsvert landslag er í lóðinni og talsvert af fallegum plöntum og trjám.  18 holu golfvöllurinn á Flúðum - Selsvöllur er í næsta nágrenni sem og Flúðir.

Nánari lýsing: Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu, öll með fataskápum. Eitt þeirra er hjónasvíta og inn af henni er sér baðherbergi og gönguhurð út á sólpall. Borðstofa-, stofa og eldhús í opnu og björtu rými með stórri rennihurð út á sólpall. Í eldhúsi er vönduð innrétting með góðu skápaplássi, granítborðplötu, vönduðum Siemens heimilistækjum, vínkæli, eyju, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Við aðalinngang í húsið er gott bíslag og fyrir innan er rúmgóð forstofa með fataskáp. Tvö eins baðherbergi eru í húsinu með flísalögðum sturtum, vönduðum blöndunartækjum og upphendum wc.
Vandaðir ál/tré gluggar eru í húsinu.  Á gólfum eru annars vegar flísar og hins vegar harðparket og húsið er kynt með svæðaskiptum gólfhita þar sem digital stýringar eru á veggjum fyrir hvert rými. Loft eru öll upptekin með innfelldri led lýsingu. Næturlýsing er undir þakkanti.

Virkilega vel skipulögð, snyrtileg og vönduð eign staðsett í eftirsóttri sumarhúsabyggð steinsnar frá Flúðum. Fallegt landslag/útsýni og örstutt frá er glæsilegur 18 holu gólfvöllur.  Frá lóðinni liggur lítill vegur sem hugsaður er fyrir golfbíla sem liggur í gegnum hverfið og beint út á völl.

Hringið og bókið skoðun.  ***** Sýni samdægurs *****  Húsið er tilbúið til afhendingar *****

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða [email protected]


 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.Fletta í fasteignalista
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.