Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Góð fjögurra herbergja íbúð, 108,7 fm á fyrstu hæð í snyrtilegu og eftirsóttu litlu fjölbýlishúsi miðsvæðis á Selfossi. Stutt í alla helstu þjónustu, skóla, verslanir og miðbæinn.Húsið er í ágætu ástandi og m.a. nýlega múrað og málað og með nýjum gluggum.
Nánari lýsing. Opin rúmgóð flísalögð
forstofa með tveimur skápum. Ágæt
stofa og
borðstofa með hurð út á flísalagðar
suðursvalir sem eru meðfram allri íbúðinni.
Eldhús með filmaðri innréttingu. Nýleg borðplata og helluborð. Borðkrókur innst.
Þvottahús og
búr/geymsla inn af eldhúsi.
Herbergjagangur. Þrjú
svefnherbergi, fataskápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi er flísalagt, sturta og nýleg innrétting með vaski. Áður var einnig baðkar en það hefur verið fjarlægt en hægt að setja upp aftur ef vill. Íbúðin er nýlega spöstluð og málum og búið er að draga í nýtt rafmagn og skipta um rofa og tengla.
Í kjallara er
sérgeymsla, 7,6 fm og
hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið skoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.