Opið hús: 16. júní 2025 kl. 17:00 til 17:30.
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Breiðvangur 13 í norðurbæ Hafnarfjarðar. Mjög góð og mikið endurnýjuð fjögurra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með möguleika á fjórða svefnherberginu. Íbúðin er 112,2 fm. Stór sérgeymsla í kjallara er 15 fm og eignin því alls 127 fm. Einnig fylgir önnur minni sérgeymsla sem er ekki skráð skv eignaskiptasamningi. Ca 6 fm.
Húsið hefur farið í gegnum miklar endurbætur á síðustu árum og má m.a. nefna nýja glugga, svalahurðir og þakjárn og þrjár hliðar hússins hafa verið teknar í gegn. Eftir er að taka suðurhliðina sem snýr að bílastæðunum. Nánari upplýsingar um framkvæmdir síðustu ára hjá fasteignasala.
Íbúðin sjálf hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum í áföngum. Innihurðar hafa verið endurnýjaðar, gólfefni, baðherbergi, fataskápar og eldhús. Einnig ofnar og rofar og tenglar.
Nánari lýsing íbúðar. Opin
forstofa með nýlegum fataskáp.
Borðstofa og rúmgóð
stofa í opnu og björtu rými, áður var fjórða herbergið þar sem borðstofa er í dag.
Útgengt úr stofu á
suðursvalir.
Eldhús með fallegri nýlegri innréttingu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir. Spanhelluborð og tveir ofnar.
Þvottahús inn af eldhúsi.
Herbergjagangur með glugga í enda. Þrjú
svefnherbergi. Nýir fataskápar í hjónaherbergi og hurð út á svalir.
Baðherbergi flísalagt, innrétting, upphengt salerni og góð sturta.
Virkilega notaleg íbúð í góðu ástandi.
Hjóla og vagnageymsla í sameign.
Rúmgott bílaplan og merkt bílastæði fyrir hverja íbúð. Sameiginlegar hleðslustöðvar á bílaplani.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða
[email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.