Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Hásteinsveg 15 A í Vestmannaeyjum sem er fallegt einbýlishús á góðum stað miðsvæðis í bænum. Húsið er byggt úr steini árið 1929 og er 129,5 m2. Árið 2005 var eignin einangruð og klædd og þak og gluggar endurnýjað. Skemmtilegur garður með útihúsi. ATH LÆKKAÐ VERÐ!
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið
[email protected] eða í síma 8611105
Nánari lýsing:Neðri hæð:
Forstofa: Kork flísar á gólfi, skóskápur undir stiga, fatahengi
Herbergi: Kork flísar á gólfi
Herbergi: Parket á gólfi, skápur
Herbergi: Parket á gólfi
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, wc, innrétting, sturta, opnanlegur gluggi
Gengið niður tröppur
Þvottahús: Flísar á gólfi, nett innrétting
Geymsla/vinnurými: Flísar á gólfi, góðir skápar
Efri hæð:Stofa: Parket flísar
á gólfi
Eldhús: Dúkur á gólfi, snyrtileg eldri innrétting
Herbergi: Dúkur á gólfi
Ris: Teppi á gólfi, mjög rúmgott, þakgluggi
Geymsluskúr: Timburgólf, óeinangraður
Sólhús: Timburgólf, búið að einangra veggi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteign