Áshamar 48, 900 Vestmannaeyjar
99.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
215 m2
99.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1976
Brunabótamat
76.450.000
Fasteignamat
73.400.000

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í almennri sölu: Áshamar 48 í Vestmannaeyjum sem er  fallegt  og vel skipulagt einbýlishús með 4 svefnherbergjum.  Húsið er byggt úr steini árið 1976 og er 215,8 m2 þar af er bílskúr 81,4 m2 byggður árið 2007.  Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár, gluggar og þakkassi endurnýjað, búið er að taka niður loft og setja innfellda lýsingu. Nýleg hitagrind, hiti í gólfi í eldhúsi og á baðherbergi.  Glæsilegur pallur með heitum potti. Innréttingar smíðaðar af Ella P.  Möguleiki á að útbúa sér íbúð í bílskúr. Til stendur að mála húsið á næstu vikum. Eignin getur verið laus fljótlega.


BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105

Nánari lýsing: 
Forstofa: Flísar á gólfi, góður skápur
Eldhús: Korkur á gólfi, falleg  innrétting smíðuð af Ella P, flísar á milli skápa, innfelld lýsing, hiti í gólfi
Þvottahús: Flísar á gólfi, góð innrétting, sérinngangur
Stofa: Parket á gólfi, útgengt á pall
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, walk in sturta, upphengt wc, innrétting, opnanlegur gluggi, hiti í gólfi
Svefnherbergi: Parket á gólfi, skápur
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Svefnherbergi: Steypt gólf, parket fylgir með
Bílskúr: Flotað gólf, ný bílskúrshurð og gönguhurð.
Baðherbergi inn af bílskúr: Flotað gólf, flíar á veggjum, walk in sturta, upphengt wc, innrétting
Pallur: Glæsilegur pallur norðan og vestan eignar með heitum potti
Útigeymsla: Timbur gólf, góð geymsla fyrir garðhúsgögn og þess háttar
Sorptunnu geymsla: yfirbyggð sorptunnugeymsla 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.