Opið hús: 27. maí 2025 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Austurberg 32, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 303. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 27. maí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og Hús Fasteignasala kynna í einkasölu: Góð og talsvert endurnýjuð, 74,6 fm, tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í litlu fjölbýlishúsi. Sérinngangur í íbúð af svalagangi. Húsið er byggt árið 1980.Nánari lýsing íbúðar. Flísalögð forstofa og þar er fatahengi. Inn af forstofu er lítil geymsla. Eldhús með endurnýjaðri innréttingu með fínum heimilistækjum, innbyggður ísskápur/frystir, uppþvottavél og þar er góður borðkrókur. Rúmgóð stofa- borðstofa og útgengt úr henni á stórar svalir. Hjónaherbergi með stórum fataskáp. Á gólfum er endurnýjað harðparket. Flísalagt baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu og þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Á stigagangi er geymsla í sameign með íbúðinni við hliðina á. Í sameign á jarðhæð er snyrtileg, sameiginleg hjóla og vagnageymsla og þurrkherbergi. Húsið var málað að utan fyrir þremur árum síðan.
Eignin er afar vel staðsett. Örstutt er í skóla á öllum stigum, ýmis íþróttamannvirki (sundlaug, Leiknisvöllinn o.s.frv), bókasafn og fjölbreytta verslun.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected]
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir" Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð