Strandvegur 30, 900 Vestmannaeyjar
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
70 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1958
Brunabótamat
39.400.000
Fasteignamat
31.850.000

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Strandveg 30 sem er glæsileg eign á 4. hæð í fjölbýli á frábærum stað í Vestmannaeyjum.  Eignin er 70,9 m2 að stærð, þar af er 5,2 m2 geymsla í kjallara.  Húsið var byggt úr steini árið 1958 en allt endurgert árið 2019. Glæsileg eign í lyftublokk á besta stað miðsvæðis í Vestmannaeyjum. Sameiginleg hjólageymsla.  Þvottavél og þurrkari getur fylgt með.  Góðar svalir sem ná meðfram eigninni með einstöku útsýni yfir bæinn, fjöllin og bryggjuna. 

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105

Nánari lýsing: 
Forstofa: Parket á gólfi, skóskápur, snagar
Eldhús: Hvít háglans innrétting, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, háfur, tveir ofnar, flísar á milli skápa
Stofa: Parket á gólfi, opið er úr eldhúsi í stofu, útgengt á rúmgóðar svalir með einstöku útsýni, gluggi
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, upphengt wc, walk in sturta, innrétting, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara
Herbergi:  mjög rúmgott herbergi, parket á gólfi, skápur
Geymsla: Flísar á gólfi, hillur


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.