Loftur Erlingsson löggitur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:Björt og opin 3herb. 86,6fm íbúð á fyrstu hæð, auk 9,4fm geymslu í kjallara, samtal 96fm.
Var upprunalega 4herb. - einfalt að bæta þriðja svefnherberginu við.Í forstofu er hengi fyrir yfirhafnir og
eldhúsið þar strax til vinstri. Innréttingin þar hvít, spanhelluborð með viftu yfir, bakarofn, uppþvottavél og ísskápur sem fylgja við sölu. Björt og snyrtileg
stofa og borðstofa og gengt út á stórar vestur
svalir. Svefnherbergi við hlið borðstofunnar með ágætum fataskápum með hengi fyrir, en
hjónaherbergið stærra og með stærri skápum með rennihurðum.
Baðherbergið flísalagt í hólf og gólf, upphengt klósett, handlaug á skáp, handklæðaofn og sturta með glerhurð í baðkari.
Gólfefni eru parket á stofum og herbergjum en flísar í eldhúsi. Rúmgóð
geymsla með glugga í kjallara,
sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi með fjórum öðrum íbúðum og
hjólageymsla fyrir allan stigaganginn
Blokkin var tekin í gegn að utan fyrir 10 árum og skipt um þakjárn og rennur 2018.
Leikskólinn Stakkaborg og Háteigsskóli í næsta nágrenni.
Góð eign á frábærum stað. Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr.2.700.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.