Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu gott fjögurra herbergja einbýlishús við Litlagerði 1B á Hvolsvelli. Húsið er byggt árið 1975 og stór og rúmgóður bílskúr árið 1992. Einbýlishús 113,1 fm og þar við bætist bílskúr 56 fm, samtals 169,1 fm. Húsið hefur í gegnum tíðina fengið gott viðhald og nýlega var húsið málað að utan og skipt um járn á þaki. Lóðin er 800 fm, steypt bílaplan og stétt við inngang, sólpallur með skjólgirðingu og garðurinn gróinn.
Áhugaverð eign miðsvæðis á Hvolsvelli þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.Nánari lýsing.
Flísalögð forstofa. Þrjú fín svefnherbergi, tvö þeirra með fataskápum en einnig er stór fataskápur á svefnherbergja gangi. Eldhús með góðri innréttingu með miklu skápaplássi og í sama rými er borðkrókur. Inn af eldhúsi er bæði þvottahús með innréttingu og geymsla og gönguhurð út á bílaplan. Rúmgóð og björt stofa þar sem gönguhurð er út á sólpall. Flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtu, wc og handklæðaofni. Stór tvöfaldur, sérstæður bílskúr.
Góð eign á góðum stað. ********** Bókið skoðun **********
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.