Áshamar 75, 900 Vestmannaeyjar
44.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
90 m2
44.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1976
Brunabótamat
43.500.000
Fasteignamat
35.000.000

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Áshamar 75 sem er björt og falleg íbúð á 2. hæð í fjölbýli í Vestmannaeyjum.  Eignin er 90,9 m2 að stærð, þar af er 6,7 m2 geymsla í kjallara.  Eignin er byggð úr steini árið 1976 og  hefur verið mikið endurnýjuð að innan, má þar nefna gólfefni, eldhús og baðherbergi. Yfirbyggðar svalir sem eru 13,3 m2 gefa mikla möguleika, eru ekki inn í skráðum m2 eignarinnnar. .
Járn á þaki var endurnýjað nýverið, nýleg útidyrahurð í sameign.   Engin skuld á húsfélagi. Frábær fyrsta eign, fyrir þá sem eru að minnka við sig eða sem dvalarstaður í eyjum.  Stutt í dalinn, golfvöllinn og Hamarskóla þar sem er búið að koma upp skemmtilegu leiksvæði með hoppudýnu og fleiru.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi
Hol: Parket á gólfi
Eldhús:  Parket á gólfi, nýleg hvít háglans innrétting
Stofa:  Parket á gólfi, útgengt út á svalir
Svefnherbergi:   parket á gólfi, skápur
Svefnherbergi: parket á gólfi, skápur
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Baðherbergi:  Flísar í hólf og gólf, baðkar,  wc, vaskur, góð innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi
Geymsla: Geymslan er í kjallara hússins og er hún 4,1 m2
Svalir:  yfirbyggðar og mjög rúmgóðar 13,3 m2, epoxy á gólfi.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.