Heiðarstekkur 2, 800 Selfoss
60.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
100 m2
60.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
48.250.000
Fasteignamat
58.250.000

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Nýleg, björt og góð endaíbúð, fjögurra herbergja á jarðhæð með sérinngangi í litlu og snotru fjölbýli. Húsið er staðsteypt og klætt og byggt 2022. Malbikuð bílastæði og þökulögð lóð. Sér verönd í suðurgarði 12,7 fm.

Örstutt í Stekkjarskóla, leikskóla og ný Nettó verslun í göngufæri.

Nánari lýsing íbúðar sem er í vesturenda hússins.
Flísalögð opin forstofa með fataskáp. GangurStofa og eldhús í opnu rými. Eldhúsinnrétting er frá HTH,  rúmgóð og er hvít og dökkir efri skápar, innbyggð uppþvottavél. Góð tæki, spanhelluborð. Harðparket á gólfi. Útgengt úr stofu á suður verönd. Tvö svefnherbergi með harðparket á gólfum og fataskápum. Þriðja herbergið er skráð sem geymsla á teikningu en er með glugga og því auðveldlega hægt að nýta sem þriðja svefnherbergi íbúðarinnar. Harðparket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt, opin sturta  og snyrtileg innrétting.
Þvottahús með glugga, flísar á gólfi, gott vinnuborð. Hiti er í gólfum.

Vel skipulögð snyrtileg íbúð.

Hjóla og vagnageymsla í sameign.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.