Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Asparland 8. Nýlegt gott raðhús 94,9 fm. Fjögurra herbergja.Timburhús klætt með liggjandi báruáli. Ál/tré gluggar og húsið því viðhaldslétt að utan.
Mulningur í innkeyrslu, steypt sorptunnuskýli og gras á suðvesturlóð, jarðvegsskipt fyrir sólpalli og ídráttarrör fyrir heitan pott.
Innra skipulag. Opin flísalögð
forstofa með opnum fataskáp, Rúmgott
forstofuherbergi með fataskáp og annað
herbergi sem er skráð sem geymsla á teikningu.
Eldhús og
stofa í opnu rými. Innrétting frá Kvik. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Spanhelluborð. Útgengt úr stofu í bakgarð.
Hjónaherbergi með opnum fataskáp. Harðparket á gólfum Flísalagt
baðherbergi með sturtu, innréttingu og speglaskápum. Flísalagt
þvottahús. Vinnuborð með vaski.
Gólfhiti er í íbúðinni. Lóðin er eignarlóð.
Allt mjög snyrtilegt og smekklegt.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.