Hrafnhólar 21, 800 Selfoss
95.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
167 m2
95.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
85.100.000
Fasteignamat
82.850.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu. Virkilega fallegt og vel við haldið 167,9 fm, fjögurra herbergja parhús við Hrafnhóla 21 á Selfossi. Húsið er steypt-timbur, steinað að utan í bland við harðvið. Stór sólpallur með skjólgirðingu. Snyrtileg hellulögn framan við hús, bílastæði og inngang. Næturýsing undir þakkanti.

Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og stórum fataskáp. Þrjú góð svefnherbergi, fataskápar í tveim þeirra en einnig er stór fataskápur á gangi. Stofa, borðstofa og eldhús í stóru, opnu og björtu rými en úr stofu er hurð út á sólpall. Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, veggfastri eyju og í innréttingu er gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp sem fylgir með ásamt uppþvottavél. Rúmgott baðherbergi, innrétting, flísalögð sturta, baðkar og upphengt wc. Flísalagt þvottahús með innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu fyrir þvottavél/þurrkara í réttri hæð. Innangengt er í flísalagðan bílskúr úr þvottahúsi. Upptekið loft er í bílskúr með rúmgóðu geymslulofti. Hiti er í gólfum hússins, upptekin loft með innfelldri lýsingu. Á gólfum er ljóst parket og á votrýmum eru flísar.
Virkilega falleg eign og vel staðsett!

Hringið og bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected]

Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir   
    
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.