Þorláksgeisli 47, 113 Reykjavík (Grafarholt)
71.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
109 m2
71.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2003
Brunabótamat
47.700.000
Fasteignamat
64.100.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu.  Virkilega bjarta og fallega íbúð á 3. hæð í snyrtilegu minna fjölbýli við Þorláksgeisla 47, 113 Reykjavík. Íbúðin ásamt geymslu og bílskúr er 109,7 fm. Húsið er byggt árið 2003.  Sérinngangur í íbúð af svölum.

Nánari lýsing:
Eignin telur forstofu með flísum á gólfi og fataskáp, tvö svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting með lýsingu, wc og sturta. Snyrtileg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og ísskápur og uppþvottavél fylgja með. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á svalir.  Inn af forstofu er flísalagt þvottahús.
Húsið er byggt 2003, steinað að utan og er því viðhaldslétt. Lóð er snyrtileg.
Á jarðhæð er fínn bílskúr og innst í honum er aflokuð geymsla.  

Falleg íbúð, vel umgengin á góðum stað með fínu útsýni.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                        

                                                        
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.