Túngata 15, 900 Vestmannaeyjar
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
8 herb.
303 m2
Tilboð
Stofur
2
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1946
Brunabótamat
112.950.000
Fasteignamat
59.750.000

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í almennri sölu: Túngötu 15  í Vestmannaeyjum sem er  einstaklega fallegt  einbýlishús á þremur hæðum í austurbænum.  Húsið er byggt úr steini árið 1946 og er 303,4 fm2, gólfflötur er þó stærri þar sem hluti fm2 er undir súð.  Fallegt og rúmgott fjölskylduhús í rólegum botnlanga í austurbænum.  Rúmgóður pallur er sunnan og vestan við húsið með heitum potti, ásamt góðum geymslurýmum. Eignin er öll hin glæsilegasta og útsýnið einstakt! Möguleiki er á að gera séríbúð á neðri hæð.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105

Nánari lýsing: 
Forstofa:Flísar á gólfi, 2 skóskápar, 
Hol: Flísar á gólfi, fallegur stigi upp á efri hæð
Stofa: Fiskibeinaparket á gólfi, rúmgóð og björt stofa með einstökum bogadregnum gluggum, útgengt á pall.
Borstofa: Fiskibeinaparket á gólfi
Eldhús: Flísar á gólfi, snyrtileg viðarinnrétting, flísar á milli skápa, gengið niður á neðri hæð.
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, nuddbaðkar, upphengt wc, innrétting, opnanlegur gluggi.
Herbergi 1: parket á gólfi, skápar, mjög rúmgott herbergi
Herbergi 2: parket á gólfi, skápar, mjög rúmgott herbergi


Efri hæð:
Herbergi 3: parket á gólfi, skápur, þakgluggi
Herbergi 4: parket á gólfi, skápur, inn af herbergi er geymslurými, möguleiki á að stækka herbergi
Opið rými: Parket á gólfi, hægt að nýta sem sjónvarpshol

Kjallari
Andyri: Flísar á gólfi, stórt og rúmgott, góðir skápar
Snyrting: Flísar á gólfi, wc, nett innrétting
Herbergi 5: parket á gólfi, mjög rúmgott herbergi, miklir möguleikar, t.d hægt að nýta sem hobbý herbergi
Herbergi 6: Parket á gólfi, þetta herbergi er innaf herbergi 5
Þvottahús: Flísar í hólf og gólf, mikið skápapláss og frábær vinnuaðstaða, sérinngangur, walk in sturta, hiti í gólfi, inngengt í bílskúr
Bílskúr: Flísar á gólfi, rafmagn, heitt og kalt vatn, bílskúrshurðaopnari, 2 góð geymslurými
Pallur: Rúmgóður pallur til suðurs og vesturs, gott geymslurými fyrir útihusgögn og þess háttar, heitur pottur




Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.