Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Brekastíg 10 í Vestmannaeyjum sem er fallegt einbýlishús á góðum stað miðsvæðis í bænum. Húsið er byggt úr timbri árið 1928 og er 158,5 fm2.
Búið er að einangra og klæða austur og vestur hlið hússins með bárujárni, byrjað er á suðurhlið. Nýleg gólfefni á aðallhæð og risi. Eign með mikla möguleika, einstakt útsýni. Stutt í miðbæinn og Barnaskólann. Góður garður með rúmgóðum timburpalli.
Möguleiki á að útbúa íbúð í kjallara - sérinngangur.
Eignin getur verið laus fljótlega.BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105Nánari lýsing: Aðalhæð:
Forstofa: nýlegur dúkur á gólfi, skóskápur
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, sturtuklefi, innrétting, handklæðaofn
Eldhús: Parket á gólfi, máluð innrétting, flísar á milli skápa, nýleg eldavél, hiti í gólfi
Stofa: parket á gólfi,
Herbergi 1: parket á gólfi, herbergið er inn af stofu
Efri hæðOpið rými/ herbergi: parket á gólfi, áður var þetta herbergi en nýtist líka sem t.d sjónvarpshol
Herbergi: parket á gólfi
Neðri hæð:Herbergi : parket á gólfi, skápur
Þvottahús/salerni: steypt gólf, innrétting, wc
Sérinngangur er á neðri hæð, möguleiki á að útbúa sér íbúð. Stór geymsla í kjallara með tengi fyrir vatn og rafmagn.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna