Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s:862 1996 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu Suðurtröð 4, 800 Selfoss. 150 fm hesthús í byggingu á Selfossi. Búið er að jarðvegsskipta og steypa sökkul. Samþykktar teikningar. Gatnagerðagjöld og byggingarleyfisgjöld eru greidd. Samkvæmt teikningu er húsið fyrir 10-11 hross en í húsinu er 8 stíur, bæði eins og tveggja hesta.Gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir hey, hnakkageymslu og kaffistofu með salerni.
Þetta er parhús í byggingu á hesthúshverfinu á Selfossi og er hvor hluti 150 fm en möguleiki er á að kaupa báðar einingar sem eru samtals 300 fm .Væntanlegir kaupendur þurfa að hafa meistara- og byggingastjóra skipti við kaup.
Á Selfossi er mjög skemmtilegt hesthúsahverfi með virkilega öflugu hestamannafélagi þar sem búið er að byggja upp glæsilega aðstöðu fyrir félagsmenn.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 [email protected]
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir" Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.