Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Hæðargarður 35. Falleg og góð tveggja herbergja íbúð, 65,3 fm á þriðju hæð í lyftuhúsi fyrir 63 ára og eldri.
Yfirbyggðar svalir og nýleg eldhúsinnrétting. Sameign er snyrtileg og gróinn og fallegur garður.
Húsvörður er í húsinu og í því er starfandi félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar og þar er m.a. hægt að kaupa heitan mat í hádeginu ásamt því sem aðgangur er að félags- og tómstundastarfi fullorðinna. Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar.
Innangengt er í þjónustumiðstöðuna á jarðhæð.
Nánari lýsing íbúðar. Opin
forstofa.
Hol/gangur, fataskápur
. Eldhús og
stofa í opnu rými, parket á gólfi. Nýleg eldhúsinnrétting og tæki, innbyggð uppþvottavél fylgir. Útgengt úr stofu á rúmgóðar yfirbyggðar flísalagðar
svalir. Svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi. Flísalagt
baðherbergi með opinni horn sturtu. Innrétting og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi, þvottavél getur fylgt. Flísalögð
geymsla innan íbúðar. Á jarðhæð er lítil
sérgeymsla. Sameiginlegt þvottahús með vélum frá húsfélaginu.
Íbúðin er laus við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið einkaskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.