Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Hús kynna í einkasölu einbýlishúsið Miðhof 6, FlúðumMikið endurnýjað 6 herbergja, 200,6 fm einbýlishús með bílskúr. Húsið er byggt úr timbri árið 2006. Stór steypt innkeyrsla og verönd í kringum húsið. Lagt er fyrir heitum og köldum potti. Heitur pottur og kaldur pottur fylgja með óuppsett. Steyptar undirstöður fyrir ca. 15 fm geymslu á verönd. Húsið er timburhús klætt með standandi timburklæðningu og er litað bárujárn á þaki.
Nánari lýsing.
Rúmgóð flísalögð forstofa með hengi.
Fimm svefnherbergi í húsinu öll með parketi. Hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Stofa og eldhús í opnu rými parketlagt. Upptekin loft. Innfeld lýsing í eldhúsi. Snyrtileg stór eikarspónlögð eldhúsinnrétting. Tvöfaldur ísskápur. Uppþvottavél. Örbylgjuofn. Útbyggður gluggi í eldhúsi.
Stofa er rúmgóð og er útgengt úr stofu á verönd.
Flísalagt baðherbergi, góð innrétting, sturta með hengi, baðkar og upphengt wc.
Flíslagt gestabaðherbergi með sturtu og innréttingu, upphengt wc og handklæðaofn.
Þvottahús flísalagt þar er innrétting. Innangengt í bílskúr úr þvottahúsi.
Bílskúr er með máluðu gólfi. Bílskúrshurð flekahurð með rafmagnsopnun.
Á verönd eru steyptar undirstöður og steypt plata fyrir ca. 15 fm geymslu/gestahús, veggir eru steyptir í 80 cm hæð. Lagt er fyrir heitu, köldu vatni og rafmagni, einnig er niðurfall þar, Steyptur stoðveggur er á lóðarmörkum að aftanverðu.
Steypt rusaltunnuskýli.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996
[email protected] ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð